Jæja, nú skulum við bara drekka í okkur fegurðina! Ég var svo heppin að fá að prófa skemmtilegt te frá merkinu TEATOX, en te-in þeirra hafa notið mikilla vinsælda síðustu ár enda alveg frábær. Te-ið sem ég fékk að prófa heitir Pure Beauty & er te sem er sérstaklega gert fyrir húðina & til að gera hana fallegri & betri. Það er klárlega eitthvað sem að ég þarf á að halda en húðin mín er búin að vera hræðileg síðustu vikur & versnar bara & versnar. Ég er búin að prófa ýmislegt síðustu daga, allskyns krem & smyrsl en ekkert virðist virka, ég ákvað því að prófa að byrja innanfrá.
Pure Beauty te-ið er hvítt te sem er þekkt fyrir að vera einstaklega gott til að ná fram fallegri húð, en te-ið er líka vatnslosandi. Ég fékk mér líka bolla með sem er með sérstakri síu sem er hægt að taka svo úr þegar að maður drekkur te-ið en hún er einnig með loki svo að það er mjög þæginlegt að halda te-inu heitu. 1tsk af te-inu góða, heitt vatn & þið eruð í toppmálum.
Ég mæli með þessu, tedrykkja er ótrúlega góð fyrir mann & það er eitthvað agalega kósí við að fá svona hlýjan drykk á köldum morgni, hlakka til að eiga þetta í haust / vetur líka.
Þið finnið mig á Instagram & Snapchat undir:
steinunne
xx
Skrifa Innlegg