Ég er klárlega búin að finna hinn fullkomna „nude“ lit fyrir mig. Liturinn er með smá glans, ég er nefnilega aðeins meira að fíla glansandi liti núna & smá komin yfir þetta matta. Liturinn er léttur, fallega brúnn með smá bleikum undirtón & fer með mér hvert sem er núna. Hann er númer 235, heitir einfaldlega NUDE & er frá L’Oreal (color riche). Staðalbúnaður í minni tösku í augnablikinu & ekki skemmir fyrir hvað hann er á góðu verði!
Þið finnið mig á Instagram & Snapchat undir:
steinunne xx
Skrifa Innlegg