Ljósmyndari frá Morgunblaðinu kom fyrir nokkru síðan og tók myndir hérna heima. Myndirnar birtust svo í sunnudags mogganum um helgina ásamt stuttu spjalli við mig um heimilið og fleira því tengt.
Hlutir fá nýtt líf í nýju rými
Akranesmærin Hrefna Daníelsdóttir hefur sterkar skoðanir á útliti heimilisins og finnst mikilvægt að breyta reglulega til. Hrefna bauð blaðamanni Morgunblaðsins inn fyrir dyrnar á fallegt heimili sitt og fjölskyldunnar á Skaganum.
Hrefna Daníelsdóttir heldur úti lífsstílsbloggi á trendnet.is og starfar sem ritari á fasteignasölunni Hákoti á Akranesi. Hún er mikill fagurkeri og hefur sérlega fallegan og stílhreinan smekk. Sjálf lýsir hún stíl sínum sem frekar svart/hvítum en um leið blómlegum og hlýlegum. ,,Ég heillast mjög mikið af skandinavískum heimilum og heimilið okkar ber þess merki,” segir Hrefna.
,,Ég er haldin breytingaræði inni á heimilinu og færi reglulega hluti á nýja staði. En breytingunum fylgir það ekki að þurfa stöðugt að kaupa nýja, heldur færi ég þá hluti sem eru til fyrir á milli rýma, því það er ótrúlegt með þessa hluti að þeir öðlast oft nýtt líf í nýju rými. Ég er líka mjög dugleg að færa plönturnar til, bæði til að færa þær á milli birtustiga og líka til að fá græna litinn í rýmin.”
Litlu hlutirnir skipta mestu máli
Hrefna segir það gera ótrúlega mikið að færa smáhluti á milli rýma. ,,Ég mæli með því við fólk ef það vantar að breyta til og er orðið leitt á uppröðuninni inni á heimili sínu, að færa til hluti og þá ekkert endilega stóru hlutina, það eru nefnilega litlu hlutirnir sem skipta mestu máli.Það eru þeir sem skreyta rýmin og lífga upp á þau. Ein græn planta gerir líka kraftaverk, það finnst mér allavega.”
Hrefna segist fá innblástur úr sínu nærumhverfi, inni á heimilum sem hún heimsækir og úr tímaritum. ,,Instagram er líka frábær samfélagsmiðill til að sækja sér innblástur þegar kemur að heimilinu. Þið finnið mig þar @hrefnadan. ” Aðspurð hvort hún eigi sér einhvern uppáhaldsmun á heimilinu svarar Hrefna neitandi. ,, Ég tengist hlutum ekki tilfinningalegum böndum en ég elska að kúra með fjölskyldunni minni í sófanum okkar. Það er fátt betra en kósíkvöld í stóra, mjúka kósí sófanum okkar. Hins vegar er ég ekkert sérstaklega ánægð með sjónvarpið inni í stofu, væri alveg til í að hafa sjónvarpsherbergi það sem sá gripur yrði geymdur, en það bíður betri tíma,” segir Hrefna að lokum og hlær.
Fleiri myndir eru í sjálfu blaðinu, sem ég mæli með því að þið kíkið á.. reyndar ekki hægt að kaupa það lengur en þið finnið það HÉR.
HDan
Skrifa Innlegg