fbpx

HALLÓ TRENDNET!

HÖNNUNINSTAGRAMPERSÓNULEGTTÍSKATRENDNET

Ég heiti Hrefna Dan og er nýr bloggari hérna á Trendnet.

Ég er 34 ára (aldursforsetinn í hópnum skilst mér!), gift honum Páli og við eigum þrjár stelpur – Viktoríu (13), Söru (10) og Tinnu (7). Við búum á Akranesi þar sem ég vinn á fasteignasölunni Hákot og í hlutastarfi hjá Akraneskaupstað. Ég er forfallinn sætindagrís sem finnst mega næs að vera í góðum hópi vina með sætindi í annarri og gott rauðvín í hinni en svo er ég líka háklassa sófakartafla sem er með eindæmum heimakær.

photo-19-11-2016-13-04-14

Þið kannist kannski einhver við mig úr bloggheimnum þar sem ég hef haldið úti mínu eigin bloggi síðastliðin fjögur ár á www.hrefnadaniels.com og á þar skemmtilegan lensendahóp sem vonandi fylgir mér hingað yfir. Ég ákvað eftir litla umhugsun að slá til þegar mér bauðst að verða bloggari á Trendnet, það hljómaði mjög spennandi að fá að tilheyra þessum fjölbreytta og flotta hóp af bloggurum.

photo-20-11-2016-15-55-40photo-07-10-2016-12-28-52

photo-16-08-2016-15-33-12 photo-01-08-16-13-03-40

Ég hef mikinn áhuga á fallegri hönnun, öllu sem viðkemur heimilum, tísku og ljósmyndun. Færslurnar mínar á blogginu verða mikið tengdar þessum áhugamálum. Ég leyfi mér lika að vera á persónulegu nótunum með ykkur og fjalla þá auðvitað um fjölskylduna og fleira tengt mínu lífi.

photo-14-10-2016-09-40-14-1 photo-22-10-2016-15-48-21-1

photo-08-07-2016-11-22-45 photo-17-11-2016-10-31-30

Annars hlakkar mig bara mega mikið til að hefja þennan nýja kafla í blogglífinu, sem bloggari hérna á Trendnet. Spennandi og skemmtilegir tímar framundan!

Þið finnið mig á Instagram/ hrefnadan og  Snapchat/ hrefnadan

-HDan

 

 

 

 

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Margrét

    25. November 2016

    Hlakka til að fylgjast með þér hér sem og á öllum öðrum stöðum í lífinu frænka – áfram þú <3

    • Hrefna Dan

      25. November 2016

      Takk kærlega elsku yndislega Margrét xx

  2. Halla

    26. November 2016

    Velkomin á Trendnet. Trendnet er viðkomustaður hjá mér á hverjum degi. Hlakka til. Gangi þér vel.

    Halla

    • Hrefna Dan

      26. November 2016

      Takk kærlega Halla xx

  3. Kolbrún Ýr

    27. November 2016

    Frábært! Hlakka til að fylgjast með þér hérna :)

    • Hrefna Dan

      27. November 2016

      Takk elsku Kolbrún xx