Ég heiti Hrefna Dan og er nýr bloggari hérna á Trendnet.
Ég er 34 ára (aldursforsetinn í hópnum skilst mér!), gift honum Páli og við eigum þrjár stelpur – Viktoríu (13), Söru (10) og Tinnu (7). Við búum á Akranesi þar sem ég vinn á fasteignasölunni Hákot og í hlutastarfi hjá Akraneskaupstað. Ég er forfallinn sætindagrís sem finnst mega næs að vera í góðum hópi vina með sætindi í annarri og gott rauðvín í hinni en svo er ég líka háklassa sófakartafla sem er með eindæmum heimakær.
Þið kannist kannski einhver við mig úr bloggheimnum þar sem ég hef haldið úti mínu eigin bloggi síðastliðin fjögur ár á www.hrefnadaniels.com og á þar skemmtilegan lensendahóp sem vonandi fylgir mér hingað yfir. Ég ákvað eftir litla umhugsun að slá til þegar mér bauðst að verða bloggari á Trendnet, það hljómaði mjög spennandi að fá að tilheyra þessum fjölbreytta og flotta hóp af bloggurum.
Ég hef mikinn áhuga á fallegri hönnun, öllu sem viðkemur heimilum, tísku og ljósmyndun. Færslurnar mínar á blogginu verða mikið tengdar þessum áhugamálum. Ég leyfi mér lika að vera á persónulegu nótunum með ykkur og fjalla þá auðvitað um fjölskylduna og fleira tengt mínu lífi.
Annars hlakkar mig bara mega mikið til að hefja þennan nýja kafla í blogglífinu, sem bloggari hérna á Trendnet. Spennandi og skemmtilegir tímar framundan!
Þið finnið mig á Instagram/ hrefnadan og Snapchat/ hrefnadan
-HDan
Skrifa Innlegg