Jæja núna er kominn tími til þess að fjárfesta í nýjum strigaskóm fyrir sumarið og í tilefni þess tók ég saman hvíta strigaskó sem ég væri alveg til í að eignast. Það er fátt sumarlegra en hvítir strigaskór og fallegt sumardress. Svo er hægt að nota flotta hvíta strigaskó við öll tilefni, hægt að klæða bæði upp og niður og er því góð fjárfesting. Jebb ég er búin að selja mér þessa hugmynd, næsta verkefni er að velja mér par. Hvaða par finnst ykkur flottast?
Frá Ganni, fást m.a. á Boozt
Frá Veja, fást í Andrá Reykjavík
Frá Nike, fást í H-Verslun
Frá Axel Arigato, fást í Andrá Reykjavík
Frá Filling Pieces, fást í Húrra Reykjavík
Sumargjöf frá mér til mín? Það held ég nú ☀️
Þangað til næst,
Anna Bergmann
IG:@annasbergmann
Skrifa Innlegg