HÆ HÓ JIBBÍ JEI ÞAÐ ER KOMIN 17.JÚNÍ !
Til hamingju með daginn kæru Íslendingar. Þvílík helgi. “Þjóðbúningur” bæði laugardag & sunnudag.
Ég hef undanfarin ár farið í “sparifötin” á 17.Júní og væri til í að sjá miklu fleiri konur gera það líka. Í Hafnarfirði hefur skapast hefð fyrir því að konur /fólk hittist í þjóðbúningunum sínum og labbi saman í skrúðgöngu að hátíðarhöldunum. Mér finnst æðislegt að sjá þessa fallegu búninga fá að koma út og vera notaðir. Það er þvílík fegurð og vinna í sumum þeirra og gaman að halda á lofti heiðri þeirra kvenna sem saumuðu þá.
Ég er heppin að passa í gömul peysuföt og upphlut sem geymst hefur í fjölskyldunni og fæ þau lánuð á dögum eins og í dag.
Í dag er ég í upphlut og dásamlega fallegri skyrtu sem var handsaumuð fyrir 60 árum. Í dag fór ég ekki á nein hátíðarhöld af því að ég er búin að vera hálf slöpp, ég fór samt í upphlutinn og var í honum í dag og verð í honum fram á kvöld. Ég læt ekki þetta eina tækifæri á ári fram hjá mér fara, ég eeeeeelska að klæða mig upp í þessi fallegu föt.
Þvílík fegurð ! Það hafa margir spurt mig út í skyrtuna en hún er 60 ára gömul, skyrtan og skrautið (snúru/vafningsmunstrið) er allt handgert í Hafnarfirði.
Maður er að sjálfsögðu í landsliðssokkunum undir herlegheitunum enda þjóðarstoltið í botni akkúrat núna :)
Skotthúfuna fékk ég í afmælisgjöf fyrir nokkrum árum, ég er mega montin af því að eiga mína eigin skotthúfu ♡
Það þarf að varðveita, lagfæra og passa vel upp á þessar fallegu flíkur. Ég saumaði upp faldinn á pilsinu í gær þar sem að hann var aðeins byrjaður að losna, ég var að sjálfsögðu í landsliðstreyjunni & tilheyrandi. Sennilega hef ég aldrei verið stoltari af því að vera Íslendingur og jafn peppuð í þessa búninga. HÚH
–
Landsliðstreyjan
Trefill: Ísland VS Argentína hannaður af syni mínum og vinum hans.
Jakki; J.Crew
Stafamen: SP / AndreA
Skór: Billibi / Gs skór
Sólgleraugu: Gucci / Optical studio
Sokkar: MP / AndreA
–
Myndirnar hér að neðan eru svo frá 17. Júní síðustu ár.
Peysuföt 2016
Upphlutur 2017
2017
2017
2016
2015
17. júní í Hafnarfirði 2015
Hér sjáið þið alsæla Andreu í barna-upphlut sem elsku Anna Gotta, amma mín heitin saumaði, en hún saumaði fötin á okkur öll frændsystkinin.
Ömmur eru bestar, ég sakna þess svo að eiga ekki ömmu, þið sem eigið ömmu nýtið tímann ykkar vel ♡
Gleðilegan þjóðhátíðardag
xxx
AndreA
Skrifa Innlegg