Mér finnst alltaf gaman að deila með ykkur hlutum sem ég hef thriftað en ég hef verið dugleg að deila með ykkur fatnaði sem ég hef thriftað upp á síðkastið, meira frá thrift kaupum hér fyrir áhugasama. Mig langar að deila með ykkur nýjustu thrift kaupum fyrir heimilið – meira um allt þetta hér að neðan!
Verslanir: Portið – Nýbýlavegi 8 & Hertex – Vínlandsleið
Gummi kæró spottaði þessa fallegu mynd eftir Henri Matisse í Portinu á aðeins 1.500 kr með ramma – Thriftaði þennan fallega ramma í Hertex en myndin er eftir Gumma – Fann allt þetta í Portinu á klink – Fann þessa fallegu skál í Portinu á 1.600 kr – Takk fyrir að lesa! xx
Skrifa Innlegg