Á svona vetrardögum er djúsí og næringaríkur pastaréttur málið. Ég útbjó þennan frábæra pastarétt í samstarfi við Innnes. Bakað penne pasta sem líkist lasagne með nóg af grænmeti, osti, bechamel sósu og rauðu pestói. Bragðgott og dásamlegt með ljúfu rauðvíni.
Uppskrift fyrir 6
500 g penne pasta frá De cecco
4 gulrætur
1 lítill laukur
3 hvítlauksrif
200 g sveppir
1 kúrbítur
200 g brokkólí
250 g kokteiltómatar
1 rautt pestó frá Filippo berio
Ólífuolía
Salt & pipar
Gott að krydda með þurrkaðri basiliku og oregano
½ dl parmigiano reggiano
3 dl rifinn mozzarella
2 dl rifinn havarti ostur
Bechamel sósa
50 g smjör
4 msk hveiti
4-5 dl mjólk
Salt & pipar
Laukduft
2 dl rifinn parmigiano reggiano
Aðferð
- Byrjið á því að skera gulrætur, lauk, sveppi, kúrbít, brokkolí og tómata í bita.
- Steikið gulræturnar upp úr ólífuolíu og mýkið þær aðeins.
- Bætið svo lauk og hvítlauk saman við og steikið í 2 mínútur á miðlungshita. Setjið sveppi, kúrbít, brokkólí og kokteiltómata saman við. Steikið í 4-5 mínútur og bætið pestóinu saman við og kryddið.
- Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum.
- Dreifið bechamel sósunni í botninn á ca. 26 x 36 cm eldföstu móti og setjið til skiptis penne pasta, grænmeti og bechamel sósu. Þið ættuð að ná þremur lögum ef þið notið álíka stórt mót og ég.
- Dreifið rifnum mozzarella, havarti osti og parmesan yfir allt saman og bakið inn í ofni við 190°C í 10-12 mínútur. Gott að bera fram með klettasalati og ólífuolíu, Njótið.
Bechamel sósa
- Bræðið smjör í potti og bætið hveiti saman við. Hrærið í hveitibollu.
- Hellið mjólkinni saman við og hrærið þar til hún hefur þykknað aðeins.
- Kryddið eftir smekk og hrærið parmigiano reggiano saman við. Bætið mjólk saman við ef að þið viljið hafa sósuna þynnri.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg