fbpx

MORGUNVERÐAR BURRITO

MORGUNMATUR & BRÖNSSAMSTARFUPPSKRIFTIR

Þessi morgunverðar burrito eru svo ótrúlega bragðgóð og djúsí. Ég útbjó þau í samstarfi við Innnes og þau slóu algjörlega í gegn. Burrito fyllt með eggjum, steiktum kokteiltómötum, svörtum baunum, rösti kartöflum, Philadelphia rjómaosti, cheddar osti, avókadó, blaðlauk og spínati. Þetta er ótrúlega góð blanda sem þið verðið að smakka! Þetta er ekta til að bera fram í sunnudagsbrönsinum eða bara einfaldlega sem kvöldmatur eða hádegismatur. Hugmyndina fékk ég fyrir mörgum árum þegar ég smakkaði morgunverðavefjuna á Cooco’s nest og loksins ákvað ég að prófa að útbúa mína útgáfu. Nammi namm, þetta ætla ég að gera aftur!

Fyrir tvo
2 Mission tortillur með spelti og höfrum
2 egg
16 kokteiltómatar
2 dl svartar baunir úr dós
4 Rösti kartöflur (fást frosnar í flestum matvöruverslunum t.d. Krónunni)
Heinn Philadelphia rjómaostur
1 dl rifinn cheddar ostur
1-2 msk blaðlaukur, smátt skorinn
Spínat eftir smekk
1 avókadó
Ólífuolía til steikingar
Salt & pipar

Salsa sósa frá Mission

Graslaukssósa
2 dl sýrður rjómi
2 msk smátt skorinn graslaukur
½ tsk laukduft
½ tsk hvítlauksduft
Salt og pipar eftir smekk

Aðferð

  1. Byrjið á því að baka rösti kartöflurnar samkvæmt leiðbeiningum.
  2. Hrærið eggin í skál og steikið þau á pönnu upp úr ólífuolíu þar til þau eru fullelduð en samt mjúk og flöffý. Saltið og piprið eftir smekk.
  3. Skerið tómatana í báta og steikið þá upp úr ólífuolíu á pönnu. Bætið baununum saman við og saltið og piprið eftir smekk. Steikið þar til tómatarnir eru orðnir mjúkir og heitir.
  4. Smyrjið tortillurnar með rjómaosti. Stráið cheddar osti yfir í miðjuna á tortillunni.
  5. Dreifið blaðlauk, spínati og eggjum í miðjuna. Því næst dreifið tómata-og baunablöndunni, avókadósneiðum og rösti kartöflum.
  6. Brjótið tortilluna eins og umslag og rúllið henni upp.
  7. Steikið á heitri pönnu upp úr ólífuolíu þar til hún verður stökk að utan, tekur 2-3 mínútur.
  8. Berið fram með graslaukssósunni og salsa. Njótið vel.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ VEL! 

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

SUMARFRÍIÐ MITT

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

2 Skilaboð

    • Hildur Rut

      29. August 2021

      Æ takk elsku yndisleg ;*