Ég sá þessa girnilegu uppskrift frá Donna Hay og ég varð bara að prófa að útbúa mína útgáfu í samstarfi við Innnes. Vá vá vá hvað þetta er gómsætur réttur. Kjúklingabringur með ferskum mozzarella og basilíku, vafðar inní parmaskinku og þaktar með panko- og parmesan hjúpi. Það getur bara ekki klikkað. Fullkominn matur til að gera vel við sig. Gott að bera fram með kartöflum, salati og ísköldu rósavíni. Nammi!
Fyrir fjóra
4 kjúklingabringur frá Rose Poultry
16 basilíku laufblöð
8 sneiðar ferskur mozzarella
Pipar
8 sneiðar parmaskinka
3 dl panko raspur
1,5 dl parmigiano reggiano
1/2 dl steinselja, smátt skorin
Ólífuolía
Aðferð
- Skerið kjúklingabringurnar til helminga.
- Dreifið kjúklingnum á bökunarplötu þakta bökunarpappír.
- Setjið tvö basilíkulaufblöð á hverja sneið og eina sneið af mozzarella. Kryddið með pipar eftir smekk.
- Vefjið parmaskinkunni utan um kjúklinginn.
- Blandið saman panko raspi, parmesan og smátt saxaðri steinselju í skál.
- Dreifið raspinum ofan á kjúklinginn og þrýstið aðeins ofan á.
- Dreifið vel af ólífuolíu yfir kjúklinginn og bakið í 20-30 mínútur við 180°C eða þar kjúklingurinn er bakaður í gegn.
- Berið fram með kartöflubátum og njótið í botn.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ VEL! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg