Ég er búinn að vinna hörðum höndum að tveimur fyrirlestrum undanfarnar vikur. Ástæðan fyrir þeim er að mér langar til að hafa góð áhrif á líf fólks og ég trúi því innilega að þessir fyrirlestrar geti breytt lífinu til betri vegar hjá mörgum einstaklingum.
Annar fyrirlesturinn heitir “Blómstraðu” og út frá honum áttar fólk sig á hvernig því getur liðið ennþá betur í lífinu með einföldum leiðum. Hann er miðaður að eldri einstaklinga frá 25 ára og upp úr. Það kemur skemmtilega á óvart hvað gefur okkur hamingju og hvað við getum gert til að verða hamingjusamari.
Hinn fyrirlesturinn heitir “Uppfylltu þína möguleika”. Markmiðið með fyrirlestrinum er að einstaklingar átti sig á hvað þeim er mögulegt að gera í lífinu og hvaða leiðir séu ákjósanlegar til að láta þessa möguleika verða að veruleika. Hann er miðaður að yngri einstaklingum frá 15 ára til 30 ára.
Það er virk þátttaka í fyrirlestrunum þar sem einstaklingar fá tækifæri á að gera áhugaverðar æfingar. Allir fá verkefnahefti með sér heim en í heftinu eru einfaldar æfingar sem ég tala um í fyrirlestrunum. Það er vinna að blómstra og að uppfylla sína möguleika í lífinu!
Endilega horfið á myndskeiðið hérna fyrir neðan ef þið hafið áhuga á að fá mig til að halda fyrirlestur. Fyrir frekari upplýsingar og bókanir: beggiolafs@beggiolafs.com. Ég hlakka til að heyra frá ykkur!
Skrifa Innlegg