Villa Copenhagen er nýtt dásamlega fallegt hótel í hjarta Kaupmannahafnar. Villa er staðsett við hliðina á tívolíinu í
sögulegri byggingu frá 1912 sem áður hýsti pósthús Kaupmannahafnar. Endurbæturnar á húsinu eru virkilega vel gerðar þar sem fortíð, nútíð & framtíð er blandað listilega vel saman.
Það eru um 390 herbergi á hótelinu, veitingastaður, bar, gym, sauna, sundlaug ásamt ráðstefnu & veislusal.
Þetta er hótel er einhvern veginn Kaupmannahöfn í hnotskurn, múrsteinar, saga, handverk & falleg hönnun.
Ég hlakka til að heimsækja Villa Copenhagen aftur & mæli mikið með.
xxx
AndreA
Skrifa Innlegg