VÁ VÁ VÁ
Hvar á ég að byrja ? Til hamingju Hildur!
Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að Hönnunarmars er í fullum gangi þessa dagana, það er mikið um að vera, sýningar og viðburðir um alla borg.
Hildur Yeoman hélt sturlaða tískusýningu í gær í Hafnarhúsinu. Sýningin var stórkostleg frá upphafi til enda, upplifun, gleði, dans & góð tónlist.
Dansarar úr íslenska dansflokknum voru meðal sýningarstúlkna, eins var söngkona á sviðinu og allskonar módel, ungar, eldri, hávaxnar, lágvaxnar já bara allskonar stórglæsilegar konur. Vá hvað það var flott að sjá þetta gert svona.
–
Það var erfitt að sitja kyrr, brosið fór ekki af okkur allan tímann, gleðin og hamingjan var allsráðandi og í lokin voru allir gestir dregnir úr sætum og við enduðum öll dansandi með fyrirsætunum á gólfinu.
Ég hef sótt tískusýningar út um allan heim og þessi sýning gaf þeim erlendu ekkert eftir. Algjör BOMBA
Takk fyrir mig/okkur <3
Andrea – Hrefna Dan – Erna Hrund & Svana Lovísa
LoveLove
AndreA
Instagram: @andreamagnus
Instagram: @andreabyandrea
Skrifa Innlegg