Tískuvikan í Kaupmannahöfn er haldin tvisvar sinnum á ári, í janúar og ágúst. Borgin iðar af lífi og vel klæddu fólki enda mikið af fólki úr tískubransanum saman komið á einum stað, innkaupafólk, hönnuðir, sölumenn, áhrifavaldar, fyrirsætur, bloggarar & ljósmyndarar.
Allir regnbogans litir, hattar, hárskraut, kjólar, strigaskór og sandalar er það sem koma skal. Fallegir litir, þægileg og flott tíska, alveg að mínu skapi ;)
Ég tók saman myndir af götutískunni, ég reyndi að sjálfsögðu að hafa eins marga Íslendinga og ég gat. Spottar þú þá ?
LoveLove
AndreA
Instagram: @andreamagnus
Instagram: @andreabyandrea
Skrifa Innlegg