SKÓR …
Það er bara eitthvað við skó … Ég kem því ekki beint í orð, þeir tengja sem tengja en ég á mjög erfitt með að standast fallega skó.
Vinkonur mínar sem vinna í skóbransanum þekkja mig vel og sendu mér mynd af þessum skóm , korteri síðar eða rúmlega það var ég mætt að máta þá og féll gjörsamlega fyrir þeim…. eðlilega ♡
Skórnir eru frá merki sem heitir Elena Iachi og ég keypti þá í Kultur.
Annars er nóg um að vera þessa dagana og ég mæli með því að fólk láti Hönnunarmars ekki framhjá sér fara. Í kvöld er fatahönnuðurinn Hildur Yeoman með sýningu í Hafnarhúsinu sem ég hlakka mikið til að sjá. Elísabet sagði frá sýningunni hér & áhugasamir geta skoðað viðburðinn hér .
Kápa & snákabelti: Notes Du Nord / AndreA
Bolur – Spenna: AndreA
Gallabuxur: Levis 501
Skór: Kultur
She made me do it :) Maya vinkona mín !
LoveLove
AndreA
Instagram: @andreamagnus
Instagram: @andreabyandrea
Skrifa Innlegg