*Færslan er unnin í samstarfi við mitt eigið merki & verslun: AndreA
KIMONO ER ALLTAF GÓÐ HUGMYND !
Ef það er einhver flík sem á alltaf við þá er það kimono!
Kimono er án vafa ein mesta snilldar flík sem til er, ég hef notað mína svo mikið í svo mörg ár við allskonar mismunandi aðstæður.
Ég hef gert kimonoa í línunni okkar alveg frá upphafi “AndreA”, við höfum gert þá stutta, síða, millisíða, þykka þunna og ég veit ekki hvað og hvað.
Spurningin sem ég fæ oftast í búðinni er: Hvernig notar maður kimono? Svarið mitt er næstum því hvenær notar þú hann ekki ?
- Spari yfir kjól eða samfesting, kimonoar eru oftast litrikír og þess vegna fullkomnir yfir svart.
- Hversdags við gallabuxur og hlýrabol.
- Á ströndinni eða við sundlaugarbakkann yfir sundbol eða bikiní.
- Við stuttbuxur og hlýrabol í góðu veðri
- Það má líka loka honum að framan og binda og nota hann eins og kjól.
- Sem náttslopp á morgnana þegar vel viðrar þá er góður kaffibolli í flottum kimono rándýr hugmynd … ég held í alvörunni að kaffið verði betra ;)
Það er bara eitthvað við það að vera í kimono, hann er úr léttu efni og fíkur upp þegar maður labbar “lIKE A QUEEN”.
Við gerum takmarkað magn í hverju printi en fáum ný print reglulega og eigum eiginlega alltaf til kimonoa í búðinni.
Ég segi það ekki nógu oft en kimono er algjört möst í allar sólarlandaferðir,,,, ALGJÖRT MÖST.
Ég fer alltaf með nokkra, það fer ekkert fyrir þeim í tösku, þeir eru notaður á hverjum einasta degi, yfir gallabuxur, stuttbuxur, kjóla eða sundföt og þú er með “náttslopp” líka.
xxx
Andrea
Instagram: @andreamagnus
Instagram: @andreabyandrea
Skrifa Innlegg