Við tókum með okkur “nema” í þetta skiptið en það er dóttir okkar Ísabella (12. ára)
Við erum bæði með saumastofur og prjónaverskmiðju sem við vinnum með hér á suður Ítalíu þannig að hver dagur er pakkaður af skemmtilegum & krefjandi verkefnum.
Dagarnir eða vikurnar á undan svona ferð virðast líka endalausir en við þurfum að mæta mjög skipulögð til leiks, með allt klárt sem við viljum gera og með nákvæmlega á hreinu hvað við viljum finna og fá út úr ferðinni. Með ferðatöskuna fulla af sniðum og pródótýpum erum við mætt hingað aftur.
Það er dásamlegt að hitta reglulega fólkið sem við vinnum með og knúsa saumakonurnar okkar ( meira um það síðar )
Ég er virk á Instagram @andreabyandrea ef það eru fleiri þarna úti eins og ég sem elska að sjá hvar fötin þeirra verða til og svo er ég á persónulegum nótum á mínu instagrami @andreamagnus .
Ferðinni er svo heitið til Napolí í einn dag á leiðinni heim en ég hef aldrei komið þangað, þaðan til London og svo heim en ég hætti við LON-KEF á síðustu stundu fyrir okkur mæðgurnar en við tvær ætlum til Spánar í smá frí.
Ég ákvað að vera bara sultuslök og panta “one way” :) sjáum svo til hvað ég tóri en stefni á að ná amk viku fríi á spáni.
CIAO
AndreA
INSTAGRAM: @andreamagnus
INSTAGRAM: @andreabyandrea
Skrifa Innlegg