Færslan er unnin í samstarfi við mína eigin verslun/merki AndreA
DRESS… “The one that got away”
Eins og flestir vita þá vinn ég við að búa til föt. Margt sem ég geri sjáið þið í búðinni minni en sumar flíkur ná aldrei alla leið þangað.
Þetta dress er í persónulegu uppáhaldi en hefur aldrei, amk ekki ennþá náð á slárnar þannig séð.
“Knot top” blússan er þó til hjá okkur í öðrum efnum og buxurnar eru til í svörtu satín en dressið í heild í þessum lit og þessu efni náði ekki lengra en að vera bara sýnishorn og koma með mér til Spánar.
Kannski breyti ég því fyrir vorið og set settið í framleiðslu ?
Buxur & bússa: AndreA (“sample”)
Toppur: OW (fæst í AndreA)
Hálsmen: LoveLove & Baunin bæði AndreA
Belti: AndreA
FlipFlops: Havaianas
Hattur: H&M
LoveLove
AndreA
–
Skrifa Innlegg