Loksins snjór ⛄️
Það gladdi mig mjög að vakna í gærmorgun & sjá að loksins var allt hvítt úti. Það verður allt svo ævintýralega fallegt þegar hvítu hamingjukornin (eins og Elísabet Gunnars vinkona mín kallar þau) þekja allt og lýsa upp skammdegið.
–
DRESS
Allir þessir mildu litir sem eru að koma fyrir vorið smella svo fallega hver við annan. Ljósir tónar – jarðlitir & svo allir pastel litirnir sem við eigum eftir að sjá meira af.
Ég vaknaði með það í hausnum að mig langaði til að vera í ljósum víðum gallabuxum (sem ég á ekki til). Ég hef þó augastað á hvítum LEVIS Ribcage, mitt uppáhalds snið. Þið finnið blogg um þær HÉR.
Ég fékk þessar fínu buxur því lánaðar hjá dóttur minni :) Pínu gaman að geta deilt nokkrum flíkum með henni, þó að við séum með ólíkan stíl eru nokkrir hlutir sem við notum báðar en dressum upp á ólíkan hátt.
Leðurkápan er í miklu uppáhaldi sérstaklega í þessum fallega lit 🧡 70´s vibe alla leið.
Leðurkápa, húfa & taska: AndreA
Peysa: Soft Rebels
Buxur: & other stories
skór: Billibli – GS Skór
xxx
AndreA
Skrifa Innlegg