Eru ekki allir hressir og með vel blásið hár eftir daginn ?
Ég veit ekki með ykkur en ég er ennþá í úlpu :)
Sumarið virðist vera “busy” einhverstaðar annars staðar en hér á Íslandi og fólk almennt ekki að nenna lengur að vera bara með sól í hjarta…. Skellur en það er ennþá úlpuveður.
Ég átti samtal í dag sem var ekki “Hvert eigum við að fara í sumar” heldur “Hvert eigum við að flytja í sumar” ?
En ég ætla að leyfa mér að vera jákvæð og halda í vonina um að sú gula drífi hingað á þessa ágætu eyju fljótlega svona áður en að ég eyði öllum vinum mínum út af Instagram sem búa í sólinni ( þið vitið hver þið eruð haha!).
Góðu fréttirnar eru að ég eins og þið fékk ókeypis hárblástur í dag :) Toppaðu það!
Ég keypti þessa úlpu þegar ég var á tískuvikunni í Kaupmannahöfn í febrúar, hún er frá Baum und Pferdgarten. Hún er búin að bjarga mér í roki og rigningu síðustu daga. Hún er þunn, pínu svona sumar úlpa, hún virkar bæði til að nota aðeins fínna og á hliðarlínunni við strigaskó, ég er sjúklega ánægð með hana.
Baum und Pferdergarten er merki sem ég hef fylgst með í mörg ár, það eina sem er erfitt við það er að bera nafnið fram og við vinkonurnar köllum það “BAUM” í daglegu tali :)
Merkið er mjög vinsælt erlendis og ég var því alsæl þegar að búðin opnaði nýlega hér í mínum heimabæ, en hún er á Garðatorgi.
Úlpan heitir “DEBBY” og fæst þar í tveimur litum, þessum eins og ég er í og í appelsínugulu.
Elísabet Gunnars skrifaði meira um verslunina hér fyrir áhugasama: BAUM UND PFERDGARTEN Á ÍSLANDI.
Þessar buxur eru nýjar hjá okkur í “AndreA“…. ég er eiginlega ekki búin að fara úr þeim …. elska þannig föt ♡
Þessi var tekin í rokinu í dag :)
Úlpa: Baum und Pferdgarten / Baum und Pferdgarten
Buxur: AndreabyAndrea / AndreA
T-shirt: AndreabyAndrea / AndreA
Stafamen: SysterP / AndreA
Sólgleraugu: Gucci / Optical studio
Skór: BilliBi / GS Skór
xxx
AndreA
Skrifa Innlegg