Gleðilegan mæðradag mömmur <3
Blómakonan ég eeeeelska svona og varð að deila þessu með ykkur. Blómabúðin Burkni er með blómamarkað í miðbæ Hafnarfjarðar.
Að vera þarna í svona góðu veðri og skoða fegurðina er pínu eins og að vera í útlöndum.
Markaðurinn er opinn í dag frá kl 10-16, ég mæli með því að þið kíkið. Góður kaffi, blómamarkaður í sólinni og rölt við höfnina á Norðurbakkanum hljómar eins og uppskrift af góðum sunnudegi, eru ekki annars allir að kaupa blóm fyrir mömmu í dag ?
Markaðurinn er staðsettur á bak við Bæjarbíó (á móti búðinni minni, hinum megin við stóra hringtorgið).
xxx
AndreA
Instagram @andreamagnus
Skrifa Innlegg