Í gær frumsýndi Kanye West YEEZY SEASON 5 með Adidas á New York Fashion Week. Línan í heildina er virkilega flott & finnst mér hún standa upp úr miðað við síðustu línur eftir Kanye. Eitthvað að klæðnaðinum var með “Calabasas” & einnig “Lost Hills” prentað á sig. Mikið er um hermanna munstur & Burgundy litinn, sem ég er kolfallin fyrir eftir sýninguna! Á tískusýningunni frumsýndi hann engin ný lög eftir sig en aðeins eitt lag var í spilun allan tímann sem var áhugavert. Fyrirsætunum var varpað upp á skjá til að sýna alla línuna á meðan lagið “Bed” eftir tónlistarmanninn Dream var í spilun. Fyrirsæturnar gengu að lokum niður sýningarpallinn! En boðsmiðinn á sýninguna að þessu sinni var peysa með merkingunum “Lost Hills” á bringunni, hliðunum & einnig SEASON 5 merkingu! Peysan var send til þeirra sem voru sérstaklega boðnir á sýninguna.
Hægt er að sjá tískusýninguna í heild sinni hér –
x
Endilega fylgist með mér á Instagram: @sigridurr, & einnig á SnapChat undir nafninu siggamagga
Skrifa Innlegg