Góða mánudagskvöldið Pattra heiti ég (fyrrverandi) bloggari hér á Trendnet -JÁ, maður gæti næstum því haldið að ég sé fyrrverandi bloggari miðað við frammistöðuna mína hér á bæ, en betra seint en aldrei ekki satt? Því ég er sko hvergi hætt! Ýmislegt hefur gengið á síðan í maí, það er nefnilega það að síðasta færslan mín var í lok maí -skandall!!
En svona það helsta er kanski það að við hjúin erum flutt með allt okkar hafurtask til Aarhus, sú dásemdar borg sem við þekkjum núorðið ansi vel. Hinn helmingurinn skrifaði undir samning hjá fótboltafélaginu AGF og hér verðum við næstu tvö árin eða svo.. pínu sérstakt að flytja svona svakalega stutt eða u.þ.b. 40 km í burtu. OG hér erum við búin að vera í nákvæmlega tvær vikur, heimilislaus á hóteli, með allt draslið okkar í geymslu. En þessar vikur hafa samt verið frábærar og við hlökkum til komandi ævintýra í þessari sjarmerandi borg! Tvær vikur í myndum..
Við hjúin höfum verið dugleg að fara í göngutúr á kvöldin, meiriháttar að búa í strandarborg
Sculptur by the Sea sýning við ströndina, skemmtilegt að labba strandarlengjuna endilanga og lista sig rækilega í gang
Þessi fylgdi bara með því að ég virka c.a. 180cm á henni, sem mér fannst ekki leiðinlegt
..Skroppin aftur saman(er samt ekki svona lítil sko)
Hótel morgunmaturinn er ágætur(í hófi)
Það er ekki hlaupið að því að finna híbýli hér í Aarhus, það er nokkuð staðfest
Uppáhalds gatan mín Jægergårdsgade, líf & fjör og nóg af girnilegum stöðum!
Við þrömmum um borgina eins og enginn sé morgundagurinn, ýmist í leit að kaffi eða íbúðum
Hádegismatur við Marselisborg höfnina er alltaf góð hugmynd
Eitt það besta við Aarhus eru öll huggulegu kaffihúsin sem borgin hefur að geyma
BOB mættur á strandbaren að sóla sig
Sushi sumarkvöld með frábæru fólki
Bara frekar sátt með þetta allt saman! Sjáumst fljótt gott fólk.
..
HELLO I’m alive and just moved to the charming city of Aarhus. Have a feeling that this is going to be a good adventure, stay tuned! Meanwhile I hope you enjoy my photo diary from the past two weeks.
x
PATTRA
Skrifa Innlegg