Haustið er mætt og þá er tilvalið að skella í þessa dásamlega súpu, ég byrja alltaf að „crave-a“ í súpu þegar haustið er að koma. Þessi tómatsúpa inniheldur gulrætur sem gerir súpuna einstaklega góða. Toppurinn yfir i-ið er að rífa ferskan mozzarella og dreifa yfir súpuna rétt áður en þið borðið hana. Svakalega gott. Ég kaupi minn mozzarella í Costco, hann er mjúkur og mjög bragðgóður þar. Mæli með að bera þetta fram með góðu brauði.
Uppskrift fyrir 3-4
1/2 laukur
4-5 gulrætur, skornar í bita
400 g plómutómatar í dós
2 msk tómatpúrra
2 hvítlauksrif
2 tsk grænmetiskraftur
4 dl vatn
1-2 dl vatn (meira vatn)
1 ½ dl rjómi
Salt og pipar
Cayenne pipar
Toppa með:
Ólífuolíu
Fersk basilíka
Ferskur mozzarella
Aðferð
- Steikið lauk upp úr ólífuolíu. Bætið svo gulrótum og hvítlauki saman við.
- Hellið tómötum úr dós ásamt öllum safanum ofan í, tómatpúrru, 4 dl vatni og grænmetiskrafti. Hrærið og látið malla saman í 30-40 mínútur á vægum hita.
- Blandið allri súpunni vel saman með töfrasprota. Þá er hún orðin vel þykk. Þynnið súpuna með 1-2 dl vatni og rjóma. Kryddið með cayenne, salti og pipar.
- Berið fram með ólífuolíu, ferskri basilíku og ferskum mozzarella.
Ólífuolía með basilíku
- Blandið saman með töfrasprota ólífuolíu, basilíku og smá salt. Hver og einn dreifir svo yfir sína súpuskál þegar þið berið hana fram.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU!
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg