fbpx

STÖKKAR GRÆNMETIS TOSTADAS

AÐALRÉTTIRGRÆNMETIS- & VEGANRÉTTIRSAMSTARFUPPSKRIFTIR

Einfaldur réttur sem þið verðið að prófa! Stökkar spelt og hafra tortilla með dásamlegu krydduðu grænmeti og kjúklingabaunum, bræddum osti og gómsætri sósu sem ég útbjó í samstarfi við Innnes. Trixið til að ná tortillunum svona extra stökkum og ljúfum er að steikja þær upp úr ólífuolíu, dreifa osti yfir og baka inn í ofni. 

Ég fékk fallega marmara diskinn og skálina að gjöf frá Reykjavík Design.

Fyrir 2
4 dl blómkál, smátt skorið
2 dl sveppir, smátt skornir
1 portobello sveppur, smátt skorinn (má sleppa eða nota meiri sveppi)
2 dl kjúklingabaunir
1 dl skarlottulaukur, smátt skorinn
2 msk ólífuolía
1 msk harissa krydd
Salt & pipar eftir smekk
2 spelt og hafra tortillur frá Mission
2 dl rifinn mozzarella ostur
5 dl rifinn havarti ostur
Fersk steinselja eða kóríander eftir smekk (má sleppa)

Sósa:
2 dl Heinz majónes
1-2 tsk harissa kryddblanda
2 msk safi úr sítrónu
Salt eftir smekk

Aðferð:

  1. Blandið blómkáli, sveppum, kjúklingabaunum og skarlottulauk saman við ólífuolíu og krydd. Hrærið öllu vel saman í skál og leyfið að standa á meðan þið græjið tortillurnar.
  2. Skerið tortillurnar í fjóra þríhyrninga. Steikið þær uppúr ólífuolíu á vel heitri pönnu þar til þær verða stökkar. Passið að þær brenni ekki.
  3. Raðið tortillunum á bökunarplötu þakta bökunarpappír og dreifið havarti osti og mozzarella osti jafnt yfir.
  4. Bakið í ofni í um 5-7 mínútur við 190°C eða þar til osturinn er bráðnaður.
  5. Steikið grænmetisblönduna upp úr ólífuolíu og dreifið yfir nýbakaðar tortillurnar. Berið fram með sósunni og stráið ferskri steinselju eða kóríander yfir.

Sósa

  1. Hrærið saman majónesi, safa úr sítrónu, harissa kryddblöndu og salti saman í skál. Smakkið ykkur til ef að þið viljið bæta kryddi saman við.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

FYLLTAR KJÚKLINGABRINGUR MEÐ RJÓMAOSTI & JALAPENO

Skrifa Innlegg