fbpx

OFNBÖKUÐ LANGA MEÐ KRÖSTI Í RJÓMAOSTASÓSU

AÐALRÉTTIRSAMSTARFUPPSKRIFTIR

Glæný uppskrift að mjög bragðgóðum fiskirétt sem ég gerði í samstarfi við Innnes. Mér finnst fiskur svo góður og er alltaf með fisk í matinn 1-2 sinnum í viku eða jafnvel oftar. Í þessum rétti notaði ég löngu og bakaði hana í ofni ásamt dásamlegri rjómaostasósu með sólþurrkuðum tómötum, sveppum, parmesan osti, rjóma og spínati. Punkturinn yfir i-ið var að dreifa Eat real snakki með dill bragði yfir réttinn þannig að hann varð stökkur og góður.

Uppskrift fyrir 4
600 g langa (einnig gott að nota t.d. þorsk eða ýsu)
Ólífuolía
250 g sveppir
1 dl blaðlaukur, smátt saxaður
½ -1 dl hvítvín, ég notaði Ramon Roqueta Macabeo Chardonnay
1-2 hvítlauksrif, pressað eða rifið
200 g sólþurrkaðir tómatar, skornir í strimla
1 hreinn Philadelphia rjómaostur
2 dl rjómi
1 dl parmigiano reggiano
1-2 msk ferskt dill, smátt skorið
Salt & pipar
100 g spínat
1 dl mozzarella ostur
6 dl Eat real hummus chips creamy dill (2,5 dl mulið snakk)

Aðferð

  1. Byrjið á því að skera lönguna í bita og kryddið með salti og pipar. 
  2. Skerið sveppi og blaðlauk smátt og steikið upp úr ólífuolíu.
  3. Bætið hvítvíninu saman við og hrærið. 
  4. Hrærið hvítlauknum, sólþurrkuðu tómötunum, rjómaostinum, rjómanum og parmigiano reggiani út í. Kryddið með fersku dilli, salti og pipar.
  5. Í lokin blandið þið spínatinu saman við og hrærið.
  6. Leggið löngubitana í eldfast mót og blandið saman við sósuna. Dreifið rifnum osti yfir.
  7. Myljið snakkið í matvinnsluvél eða setjið í lokaðan poka og rúllið yfir það með kökukefli og dreifið yfir réttinn.
  8. Bakið í 18 – 20 mínútur við 190°C eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. Gott að bera þetta fram með kartöflubátum eða hrísgrjónum.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU! :)

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

MYNDBAND: LJÚFFENG OSTAKAKA Í GLÖSUM

Skrifa Innlegg