Glæný uppskrift að mjög bragðgóðum fiskirétt sem ég gerði í samstarfi við Innnes. Mér finnst fiskur svo góður og er alltaf með fisk í matinn 1-2 sinnum í viku eða jafnvel oftar. Í þessum rétti notaði ég löngu og bakaði hana í ofni ásamt dásamlegri rjómaostasósu með sólþurrkuðum tómötum, sveppum, parmesan osti, rjóma og spínati. Punkturinn yfir i-ið var að dreifa Eat real snakki með dill bragði yfir réttinn þannig að hann varð stökkur og góður.
Uppskrift fyrir 4
600 g langa (einnig gott að nota t.d. þorsk eða ýsu)
Ólífuolía
250 g sveppir
1 dl blaðlaukur, smátt saxaður
½ -1 dl hvítvín, ég notaði Ramon Roqueta Macabeo Chardonnay
1-2 hvítlauksrif, pressað eða rifið
200 g sólþurrkaðir tómatar, skornir í strimla
1 hreinn Philadelphia rjómaostur
2 dl rjómi
1 dl parmigiano reggiano
1-2 msk ferskt dill, smátt skorið
Salt & pipar
100 g spínat
1 dl mozzarella ostur
6 dl Eat real hummus chips creamy dill (2,5 dl mulið snakk)
Aðferð
- Byrjið á því að skera lönguna í bita og kryddið með salti og pipar.
- Skerið sveppi og blaðlauk smátt og steikið upp úr ólífuolíu.
- Bætið hvítvíninu saman við og hrærið.
- Hrærið hvítlauknum, sólþurrkuðu tómötunum, rjómaostinum, rjómanum og parmigiano reggiani út í. Kryddið með fersku dilli, salti og pipar.
- Í lokin blandið þið spínatinu saman við og hrærið.
- Leggið löngubitana í eldfast mót og blandið saman við sósuna. Dreifið rifnum osti yfir.
- Myljið snakkið í matvinnsluvél eða setjið í lokaðan poka og rúllið yfir það með kökukefli og dreifið yfir réttinn.
- Bakið í 18 – 20 mínútur við 190°C eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. Gott að bera þetta fram með kartöflubátum eða hrísgrjónum.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU! :)
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg