fbpx

OFNBAKAÐAR KJÖTBOLLUR MEÐ SPAGHETTI

AÐALRÉTTIRSAMSTARFUPPSKRIFTIR

Hvað er betra en „comfort“ matur í allri þessari heimaveru? Hér kemur uppskrift að ljúfum comfort rétti sem ég gerði í samstarfi við Innnes. Ítalskar kjötbollur með pestó, dásamlegri sósu og spaghetti bakað í ofni með ferskum mozzarella og toppað með basiliku. Ég nota ítalskt gæða spaghetti frá De Cecco sem gerir réttinn svo einstaklega góðan! Punkturinn yfir i-ið er að setja pestó með sólþurrkuðum tómötum í kjötbollurnar. Nammi! Við á heimilinu elskum svona rétti, sérstaklega þegar maður er svona mikið heima. Mér finnst frábært að elda ríflegan skammt og eiga í hádegismat daginn eftir. Þessi uppskrift hentar vel í tvær máltíðir fyrir tvo fullorðna og tvö börn.  

Uppskrift fyrir fjóra til fimm fullorðna
800 g nautahakk
½ krukka pestó með sólþurrkuðum tómötum frá Filippo berio
1 dl kotasæla
1 dl parmigiano reggiano, rifinn
1 egg
2 hvítlauksrif
1 tsk origano
Salt & pipar
Ólífuolía

Ferskur mozzarella
Spaghetti frá De Cecco
Fersk basilika

Sósa
Hunts tómatssósa í dós
1-2 hvítlauksrif
1 dl parmigano reggiano
2 msk Philadelphia rjómaostur
Salt & pipar

Aðferð

  1. Byrjið á því að blanda saman nautahakki, pestó, kotasælu, parmigiano reggiano, eggi, pressuðu hvítlauksrifi, origano, salti og pipar í skál. Hnoðið öllu saman með höndunum eða notið hrærivél.
  2. Mótið kjötbollurnar með matskeið þannig að þær verði allar svipaðar að stærð.
  3. Dreifið bollunum í eldfast form klætt með bökunarpappír.
  4. Drefiði ólífuolíu yfir þær og bakið í 20-25 mín við 190°C eða þar til bollurnar eru eldaðar í gegn.
  5. Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum og útbúið sósuna á meðan kjötbollurnar eru að bakast.
  6. Sósan: Hrærið saman tómatsósu, pressuðu hvítlauksrifi, parmigiano reggiano, rjómaosti, salti og pipar í potti við vægan hita.
  7. Dreifið spaghetti í eldfast mót. Því næst dreifið kjötbollunum ofan á og hellið sósunni yfir.
  8. Rífið ferskan mozzarella og dreifið yfir og bakið í ofni í 5-7 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður. 
  9. Berið fram með ferskri basiliku og parmigiano reggiano.

Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið! ;)

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU! 

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

 

HELGARKOKTEILLINN : GRÆNN HREKKJAVÖKU DRYKKUR

Skrifa Innlegg