Upp á síðkastið hef ég verið mjög spennt fyrir þessu döðlunammi sem hefur farið „viral“ á samfélagsmiðlunum. Ég varð að prófa að útbúa þetta sjálf og að sjálfsögðu notaði ég uppáhalds Whole Earth hnetusmjörið í samstarfið við Heilsu. Að auki notaði ég ferskar döðlur, 70% súkkulaði og saltaðar pistasíur. Pistasíurnar setja punktinn yfir-ið. Svo einfalt, gott og geggjað að eiga til í frystinum ef mann langar í eitthvað sætt! Ef þið hafið ekki smakkað þá mæli ég með.
30 ferskar döðlur
Whole Earth hnetusmjör í túpu eftir smekk
100 g 70% súkkulaði
½ dl pistasíur, gróft skornar
Aðferð
- Byrjið á því að taka steinana úr döðlunum.
- Setjið bökunarpappír í bökunarform sem má fara í frystinn, dreifið döðlunum og þjappið þeim saman með glasi eða notið hendurnar þannig að þær mynda botn.
- Hristið hnetusmjörið vel og sprautið yfir döðlurnar eftir smekk. Dreifið úr því með skeið.
- Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði, dreifið yfir hnetusmjörið og stráið pistasíum yfir.
- Setjið í frysti í klst, skerið í bita og njótið. Geymið svo bitana í frystinum.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg