Halló!
Ég er ennþá að fikra mig áfram í því hvernig ég vil nákvæmlega hafa vloggin. Ég veit þó að ég ætla halda áfram að sýna frá mínu daglega lífi eins og ég hef gert hingað til í vloggunum. Ég ætla auk þess stundum að sýna einungis frá eitthverju ákveðnu eins og t.d. eitthverju viðfangsefni sem tengist andlegri heilsu, matarinnkaupum, morgunrútínu eða eitthverju sambærilegu. Ég vona að þið skiljið hvert ég er að fara.
Þetta frekar óhefbundið vlogg þar sem ég tala bara í myndavélina. Ég mæli hinsvegar hiklaust með því. Endilega látið mig vita hvað ykkur finnst og hvort þið fýlið svona tegund af vloggi líka. Takk fyrir að horfa!
Þangað til næst, Beggi Ólafs
Skrifa Innlegg