fbpx

HAGNÝTAR LEIÐIR TIL AÐ EFLA SAMBÖND

Það er heilmikil fórn falin í því að ákveða að deila lífinu með öðrum einstakling. Við erum öll ólíkir persónuleikar, með ólíka sýn á heiminn og með mismunandi þarfir, vætningar, gildi og reynslu. Það getur skapað ákveðið vandamál þar sem þrjóskan við að ríghalda í sína heimsýn getur verið ansi kröftug og haft mikil áhrif á sambandið milli tveggja einstaklinga.

Þar sem þú eyðir gífurlega miklum tíma með makanum þínum yfir ævina er mikilvægt að spá í hvernig maður getur stuðlað að ánægjulegu og heilsusamlegu sambandi. Stundum þarf maður að standa fastur á sínu, stundum þarf maður að gefa eftir, stundum þarf maður að taka makanum sínum eins og hann er og líta á hlutina frá fleiri en eigin sjónarhorni. Ég ætla að segja ykkur frá nokkrum þáttum sem gætu haft góð áhrif á ykkar sambönd.

 Heiðarleiki – Segðu sannleikann

Ég tel að heiðarleiki sé mikilvægasti þátturinn í að stuðla að góðu sambandi. Það er fáránlega mikilvægt að segja sannleikann og það sem manni liggur á brjósti. Sannleikurinn er sagna bestur. Það getur hinsvegar verið erfitt að segja sannleikann sem gerir það að verkum að einstaklingar „fresta“ því. Það er miklu auðveldara að gleyma vandamálinu heldur en að tala um það.

Þessi leið er ekki líkleg til árangurs. Að fresta sannleikanum og lifa í meðvitaðri blindni nagar þig nefnilega meira seinna meir og hefur sennilega meiri áhrif á þig en þú heldur. Það getur haft þau áhrif að þú verður reiðari í langan tíma, það þarf minna til að stuða þig, tilfinningarnar hlaðast upp og að lokum er mjög líklegt að þú hreinlega springir.

„Ég er búin að vera í óhamingjusömu sambandi í þrjú ár“ – Af hverju í fjandanum þurftirðu að bíða í þrjú ár með að segja sannleikann? Myndirðu nenna að sóa þremur árum af lífinu þínu bara út af því að þú varst hrædd/ur við að segja sannleikann?

Taktu ábyrgð, sýndu hugrekki og segðu sannleikann þó svo það sé erfitt. Það er erfitt á því augnabliki en til lengri tíma ertu miklu líklegri til að eiga í góðu sambandi. Segðu það sem liggur þér á brjósti, því fyrr því betra.

Það þýðir samt ekkert að þú hafir alltaf rétt fyrir þér. Þetta snýst ekki um að vinna samræðurnar. Í staðinn fyrir að vinna á móti hvoru öðru að vandamálinu þá eigið þið að vinna saman að því. Það þarf að vera jafnvægi milli þess að segja sannleikann og að sýna auðmýkt og að taka sannleikann frá hinum aðilanum inn í myndina. Ef báðir aðilar segja það sem liggur þeim á brjósti er líklegra að það komi einhver millivegur þar sem báðir aðilar eru hæfilega sáttir með niðurstöðuna.

Bættu hlutfallið milli jákvæðra og neikvæðra skilaboða.

Skilaboð á milli einstaklinga sem lifa í ánægjulegu sambandi eru fimm á móti einu. Semsagt fyrir hver fimm jákvæð skilaboð er eitt neikvætt. Settu þér markmið um að bæta þetta hlutfall. Þú getur gert það með því að sýna ást, hrósa og tjá þakklæti í garð maka þíns.

Svaraðu á virkan og uppbyggilegan máta

Þegar einstaklingar deila jákvæðum fréttum upplifa þeir jákvæðar tilfinningar. Þessar tilfinningar geta aukist enn fremur háð því hvernig aðrir einstaklingar svara þessum jákvæðu fréttum.

Það eru fjórar leiðir til að svara þegar einstaklingar segja þér frá jákvæðri upplifun (sjáðu hér að neðan). Svaraðu á virkan og uppbyggilegan máta þegar makinn þinn segir þér frá jákvæðri upplifun. Sýndu stuðning og svaraðu af áhuga.

Jákvæð upplifun: „Hey, ég fékk stöðuhækkun í vinnunni í dag“

Virkt uppbyggilegt svar:

Vá, algjör snilld. Vel gert! Hvað finnst þér um það? Hvernig leið þér þegar yfirmaðurinn tilkynnti þér það? Þú ert búin/n að vera rosa dugleg/ur

Óvirkt uppbyggilegt svar:

Það er snilld.

Virkt óuppbyggilegt svar:

En þarftu þá ekki að vinna meira? Hvernig ætlarðu að fara að því? Heldurðu að þú hafir tíma í það? Ég myndi ekki taka að mér meiri vinnu ef ég væri þú.

Óvirkt óuppbyggilegt svar: 

Ég fór að borða áðan og maturinn var…

 

Að lokum getur verið gott að minna sig á að samband milli tveggja aðila er ekki alltaf dans á rósum, rétt eins og lífið. Að vera í sambandi getur innihaldið góða tíma og slæma tíma, sigra og töp, mistök og árangur. Það er mikilvægt að kunna að meta allar upplifanir þar sem þær geta kennt manni margt.

Settu vinnu í sambandið. Það skilar sér margfalt til baka!

MILLIVEGURINN #21 - HUGLEIKUR DAGSSON

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

3 Skilaboð

  1. Fanney Ingvars

    15. April 2019

    Geggjuð færsla!

  2. Jenný Bára Sigurðardóttir

    7. September 2019

    Fáðu fyrrverandi elskhuga þinn aftur brýn Ekki missa hann! Drigbinovia hefur hjálpað þúsundum kvenna og karla við að fá hjónaband sitt aftur með raunverulegum árangursríkum ástum sínum. Ég er Jenný Bára Sigurðardóttir frá Akureyri, en ég flyt til Sviss. Eftir 12 ára hjónaband hefur ég og maðurinn minn lent í einni deilu / baráttu eða hitt þar til hann loksins yfirgaf mig og flutti til Kaliforníu til að vera með annarri konu. Ég fann að lífi mínu var lokið og börnin mín héldu að þau myndu aldrei sjá föður sinn aftur. Ég reyndi að vera sterk bara fyrir börnin en ég gat ekki stjórnað sársaukanum sem kvelur hjarta mitt, hjarta mitt fylltist sorgum og sársauka vegna þess að ég var virkilega ástfanginn af manninum mínum. Á hverjum degi og nótt hugsa ég til hans og vildi alltaf að hann gæti komið aftur til mín, ég hafði virkilega áhyggjur og ég þurfti hjálp, svo ég leitaði eftir hjálp á netinu og ég rakst á vefsíðu sem benti til að Drigbinovia gæti hjálpað til við að fá Ex eiginmann aftur hratt aftur . Svo að mér fannst ég ætti að prófa hann. Ég hafði samband við hann og hann sagði mér hvað ég ætti að gera og ég gerði það þá gerði hann Love spell fyrir mig. tveimur dögum seinna hringdi maðurinn minn í raun til mín og sagði mér að hann sakni mín og krakkanna svo mikið, svo magnað !! Svo var það hvernig hann kom aftur sama dag, með miklum kærleika og gleði, og hann baðst afsökunar á mistökum sínum og sársaukanum sem hann olli mér og krökkunum. Síðan frá þeim degi, hjónaband okkar verður nú sterkara með hverjum deginum en áður, allt þökk sé Drigbinovia. hann er svo öflugur og ég ákvað að deila sögu minni á internetinu að Drigbinovia er raunverulegur stafsetningarstjóri sem ég mun alltaf biðja um að lifa lengi til að hjálpa börnum sínum í vandræðum, ef þú ert hérna og þú þarft fyrrverandi elskhuga þinn eða bjargaðu hjónabandi þínu hratt. Ekki gráta lengur, þú getur líka haft samband við Drigbinovia Sendu hann í tölvupósti á doctorigbinovia93@gmail.com eða WhatsApp honum +2348144480786 góðvild þín gleymist aldrei.