fbpx

AFHVERJU BORÐA ÉG PLÖNTUFÆÐI?

Plöntufæði

Afhverju borða ég plöntufæði?

Veganismi er mikið í umræðunni þessa dagana. Hvort sem við erum að tala um Amazon eldanna eða grænmetisfæði í skólum, þá er fólk mikið að ræða og deila um áhrif plöntufæðis á lífið sjálft.

Fólk er að vera meðvitaða um heilsuna sína, áhrifin sem þeirra daglega venjur hafa á umhverfið og siðferðisleg málefni. Ég tel þetta afar jákvæða þróun og ég fagna umræðunni. Við eigum að hjálpast að gera heiminn að betri stað og færa hann nær góðu og fjær illu.

Ég elskaði kjöt. Ég skildi ekki fólk sem borðaði ekki kjöt. Hvað þá þeir sem borðuðu ekki kjöt og voru í íþróttum? Þvílíkir aumingjar. Ég skil alla sem eru með þessa hugsun enda hugsaði ég það nákvæmlega sama  einu sinni.

Fordómar byggjast á fáfræði. Því meira sem við erum meðvituð, því meira getum við skilið sjónarhorn annarra. Ef við höldum að okkar sannleikur sé sá eini rétti þá erum við á rangri hillu í lífinu. Þá miðar okkur ekkert áfram. Þá lærum við ekkert nýtt. Maður verður að vera opinn fyrir nýjum hugmyndum og sjónarmiðum þar sem það er miklu meira í þessum heimi sem við vitum ekkert um en það sem við vitum um.

Heilsa, umhverfið, siðferðiskenndin

Ég byrjaði að borða plöntufæði því ég vildi gera allt til þess að komast í atvinnumennsku í fótbolta. Eitt af því sem skiptir gríðalega miklu máli í íþróttum er mataræði. Þegar ég var að afla mér upplýsingar um plöntufæði sá ég á mörgum stöðum að plöntufæði gæti bætt endurheimt og orku, sem eru tvö lykilatriði í íþróttum í dag.

Seinna meir færðist hvatningin mín líka á aðra heilsuávinninga plöntufæðis. Plöntufæði er talið geta komið í veg fyrir ýmsa lífstílsjúkdóma, t.d. hjartasjúkdóma og krabbamein. Þetta eru sjúkdómar sem í kringum 50% af dauða mannkyns nú til dags má rekja til.

Í dag hefur fókusinn líka færst yfir á umhverfisávinninga plöntufæðis. Að sleppa því að borða kjöt er eitt það áhrifamesta sem við getum gert sem einstaklingar til þess að hafa góð áhrif á umhverfið. Pælið í því, það fara 3500 lítrar af vatni í að búa til eina 250 gr steik. Það er eins og að sleppa því að fara í sturtu í þrjá mánuði. Bið að heilsa ykkur.

Undanfarið hefur aukist verulega í siðferðiskenndina mína. Iðnaðurinn og þjáningin bakvið það að maður geti gætt sér á kjöti er viðbjóðslegur. Flestir myndu ekki fá sér kjöt ef þeir þyrftu að slátra dýrinu sjálfir. Við lítum meðvitað blint framhjá hvað gerist í þessum verksmiðjum þar sem við viljum ekki sjá þjáningunna á bakvið það sem við erum að borða. Mér finnst bragðlaukarnir mínir ekki mikilvægari en þjáning dýra.

Mín reynsla:

Allt mitt líf hélt ég að ég þurfi kjöt, egg, mjólkurvörur og skyr til að vera hraustur. Skilaboð sem voru prentuð í hausinn á mér frá barnæsku. Ég hafði rangt fyrir mér. Ég hef borðað einungis plöntufæði í 4 ár og ég elska það. Það hefur góð áhrif á mína líðan. Ég jafna mig hraðar eftir æfingar. Ég er orkumikill. Ég man ekki eftir hvenær ég var veikur síðast. Ég er í góðu formi.

Helsta ástæðan í stuttu máli:

Af því að ég get það. Af því öll rökin sem ég finn styðja við plöntufæði. Af því mér finnst það hinn eðlilegast hlutur. Af því það hefur marga góða ávinninga.

Mér finnst engin ástæða til þess að borða kjöt. Afhverju ætti ég að gera það þegar ég get sleppt því? Ég hef allavegana ekki fundið nein góð rök hingað til og trúiði mér ég hef leitað.

Þrjár myndir sem ég mæli með að horfa ef þið viljið sökkva ykkur í veganisma:

Forks over knives – Heilsumynd

Cowspiracy – Umhverfismynd

Earthlings – Siðferðismynd (ekki fyrir viðkvæma)

Takk fyrir að lesa, áfram plöntur!

HVERNIG FÆ ÉG MEIRI HVATNINGU Í LÍFINU?

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

2 Skilaboð

  1. Jenný Bára Sigurðardóttir

    7. September 2019

    Fáðu fyrrverandi elskhuga þinn aftur brýn Ekki missa hann! Drigbinovia hefur hjálpað þúsundum kvenna og karla við að fá hjónaband sitt aftur með raunverulegum árangursríkum ástum sínum. Ég er Jenný Bára Sigurðardóttir frá Akureyri, en ég flyt til Sviss. Eftir 12 ára hjónaband hefur ég og maðurinn minn lent í einni deilu / baráttu eða hitt þar til hann loksins yfirgaf mig og flutti til Kaliforníu til að vera með annarri konu. Ég fann að lífi mínu var lokið og börnin mín héldu að þau myndu aldrei sjá föður sinn aftur. Ég reyndi að vera sterk bara fyrir börnin en ég gat ekki stjórnað sársaukanum sem kvelur hjarta mitt, hjarta mitt fylltist sorgum og sársauka vegna þess að ég var virkilega ástfanginn af manninum mínum. Á hverjum degi og nótt hugsa ég til hans og vildi alltaf að hann gæti komið aftur til mín, ég hafði virkilega áhyggjur og ég þurfti hjálp, svo ég leitaði eftir hjálp á netinu og ég rakst á vefsíðu sem benti til að Drigbinovia gæti hjálpað til við að fá Ex eiginmann aftur hratt aftur . Svo að mér fannst ég ætti að prófa hann. Ég hafði samband við hann og hann sagði mér hvað ég ætti að gera og ég gerði það þá gerði hann Love spell fyrir mig. tveimur dögum seinna hringdi maðurinn minn í raun til mín og sagði mér að hann sakni mín og krakkanna svo mikið, svo magnað !! Svo var það hvernig hann kom aftur sama dag, með miklum kærleika og gleði, og hann baðst afsökunar á mistökum sínum og sársaukanum sem hann olli mér og krökkunum. Síðan frá þeim degi, hjónaband okkar verður nú sterkara með hverjum deginum en áður, allt þökk sé Drigbinovia. hann er svo öflugur og ég ákvað að deila sögu minni á internetinu að Drigbinovia er raunverulegur stafsetningarstjóri sem ég mun alltaf biðja um að lifa lengi til að hjálpa börnum sínum í vandræðum, ef þú ert hérna og þú þarft fyrrverandi elskhuga þinn eða bjargaðu hjónabandi þínu hratt. Ekki gráta lengur, þú getur líka haft samband við Drigbinovia Sendu honum tölvupóst á doctorigbinovia93@gmail.com eða WhatsApp honum
     í síma +2348144480786 góðvild þín gleymist aldrei.

  2. Pingback: Íslenska íþróttafólkið sem breytti leiknum - DV