Hér höfum við Ólöfu Birnu Garðarsdóttur og Birnu Einarsdóttur eigendur Reykjavík Letterpress. Snillingar, fagurkerar og hæfileikabúnt! Kynnumst Letterpress betur í léttu spjalli og nýjasta samstarfverkefninu þeirra við Epal og Leif Ými …
Reykjavík Letterpress varð 12 ára nú í haust og það er gaman að minnast þess að alveg frá upphafi höfum við leikið okkur með servíettuformið á ótrúlega fjölbreyttan og skemmtilegan hátt. Fyrir fyrstu jólahátíðina prentuðum við t.d. 20 mismunandi brot úr vinsælum jólalögum og röðuðum í pakka þannig að enginn við matarborðið fékk sama textabútinn. Ósjálfrátt brast fólk í söng og þá reyndi á að muna restina af textanum! Fyrir áramótin vorum við síðan með nokkurs konar áramótauppgjör, aftur voru það 20 mismunandi servíettur með texta sem hjálpaði til við að rifja upp ýmislegt frá árinu sem var að líða. Þá fékk hver og einn miða til að skrifa hjá sér markmið fyrir komandi ár – allt á léttu nótunum gert og við erum ennþá að hitta fólk sem segir þessa áramótamiða vera orðna ómissandi hluta af hátíðinni.
,,Hér um ræðir servíettur sem þjóna tvenns konar tilgangi – annars vegar í notagildi og hins vegar til að styrkja gott málefni, og það kunnum við vel að meta. ”
Það hefur færst mikið í vöxt undanfarin misseri að við fáum beiðnir um að sérhanna og prenta servíettur fyrir hin ýmsu tilefni. Þessi látlausa og nytsama vara virðist henta sérstaklega vel í hverskonar fjáröflunartilgangi. Í því samhengi má nefna að fyrir síðustu jól tókum við höndum saman, Epal og Letterpress, og prentuðum hátíðarservíettur fyrir jólahátíðina og rann ágóðinn af þeirri sölu til Barnaspítala Hringsins. Virkilega vel heppnað og gjöfult samstarf sem fékk okkur til að færa hugmyndina á næsta stig og að þessu sinni fengum við til liðs við okkur myndlistamanninn Leif Ými sem er sannarlega listamaður orðaleiksins. Leifur útskrifaðist frá Listaháskólanum og hefur haldið ótal sýningar hér heima og erlendis. Eins hefur hann hlotið viðurkenningar fyrir störf sín og eru verk hans í eigu safna og fjölda einstaklinga. Hann gefur verk sitt til málefnisins og tengir munnþurrkuna við þann skemmtilega leik að mata börn.
Hin fullkomna gleðigjöf sem gefur áfram …
Þú færð servíetturnar í epal & netverslun þeirra – hér.
Skrifa Innlegg