Samstarf/BYKO
Súkkulaði ljóst & kampavín 2 % eru klárlega uppáhalds litirnir mínir úr litakortinu sem ég gerði í samstarfi við BYKO.
Lesið líka: LITAKORT ANDREU FYRIR BYKO.
Ég valdi einmitt þessa tvo liti þegar við vorum að taka búðina í gegn fyrir stuttu. Ég var alveg 100% viss með kampavín 2% en ég er búin að mála með honum áður og vissi nákvæmlega að það var liturinn sem ég vildi á stóra langa vegginn í búðinni.
Ég var aðeins hræddari við súkkulaði litinn, eðlilega kannski en VÁ hvað sá veggur heppnaðist vel. Súkkulaðibrúnn er svo ríkur, djúpur & fallegur litur, hentar fullkomlega á myndvegginn okkar.
Klædd í stíl við vegg í fyrsta sinn ;)
Myndaveggurinn var áður grár, hér má sjá myndir: Fyrir & eftir …
“In the making”
Kampavín 2% … Er til fallegri litur? Hlýr, hreinn & hlutlaus. Litur sem ég held að passi nánast allstaðar.
xxx
AndreA
Skrifa Innlegg