Skóbúðardraumurinn … 👠🔨
Einhverjir vita af þessu og aðrir lásu mögulega um “leyndarmálið” HÉR í gær.
Við erum að opna skóbúð ! Ég þarf alveg að lesa þessa setningu oft sjálf 👀 Ég trúi varla að það sé að gerast.
Við erum búin að vera á haus í framkvæmdum & þegar ég segi við þá meina ég Óli. Ég er meira búin að vera á haus við að kaupa inn skó & vörur sem við ætlum að bjóða uppá í búðinni.
Verslunin verður bara rétt hjá AndreA, á Vesturgötu 8 í gömlu timburhúsi sem við erum að gera upp að innan núna en ætlum að taka það í gegn að utan með hækkandi sól.
Akkúrat núna er gólfefnið komið á & við erum byrjuð að mála …. þannig að það styttist í opnun.
Hvernær ætlum við að opna? Þegar við erum búin 😉
Það er óhætt að segja að við stelpurnar erum að kaaaafna úr spenningi ⚡
Við lofum litadýrð & fallegum skóm 🎀
Það erfiðasta í þessu ferli er að geta ekki farið á neinar skósýningar út af dottlu 🦠.
Við náðum þó sem betur fer að fara á tískuvikuna í Kaupmannahöfn í ágúst (myndirnar hér að neðan eru teknar þar) & svo erum við búin að fara á óteljandi fjarfundi (þið fattið hvaða mynd er þaðan).
Hlakka til að sýna ykkur meira 😘
xxx
AndreA
IG @andreamagnus
IG @andreabyandrea
Skrifa Innlegg