Páskaskraut!
Það er hefð í tengdafjölskyldunni minni að mála & skreyta egg fyrir páskana. Yfirleitt hittumst við í hádegismat og hver og einn kemur með sín egg, við blásum úr eggjunum & notum innihaldið í matargerð og svo er bara hafist handa við að mála. Við tökum allan daginn í þetta, sitjum & spjöllum , eldum , málum og njótum þess að vera saman.
Málningu & pensla kaupi ég í Söstrene Grene en það má líka kaupa allskonar skraut, glimmer, límmiða og hvað sem er en það er líka rosalega gott að vera með blýant og mjóa tússpenna eða liti.
Við söfnum þessu svo ár frá ári , ég merki eggin bæði með upphafsstöfum og ártali þannig að krakkarnir þekki sín egg, það er líka gaman að sjá hvað eggin breytast ár frá ári hjá þeim.
þetta er gæðastund af bestu gerð þar sem allir gleyma sér ungir sem aldnir.
Gleðilega páska !
Andrea
Instagram: andreamagnus
Instagram: andreabyandrea
Skrifa Innlegg