HönnunarMars og góða veðrið bauð upp á algjöra veislu á föstudaginn, svei mér þá þetta var eins og að vera á tískuviku erlendis. Borgin iðaði af lífi & skemmtilegum viðburðum. Hönnunarmiðstöð á risastórt hrós skilið fyrir frábæra og vel skipulagða hátíð.
Svona ca var föstudagurinn minn í máli & myndum …
HILDUR YEOMAN, SPLASH 💦
Hildur stóð undir nafni og hélt trylltan hafmeyju gjörning í verslun sinni við Laugaveg. Stelpurnar í CYBER gjörsamlega slógu í gegn í glæsilegum ferskum litríkum flíkum frá Yeoman. Mjög skemmtilegur viðburður & virkilega gaman að kíkja inn í ævintýralegan heim Hildar Yeoman.
Ef þið hafið ekki hlustað á CYBER þá HÉR gjörið þið svo vel 🧜♀️
SPLASH línuna í heild sinni getið þið skoða HÉR .
SIF BENEDIKTA X BRYNJA SKJALDAR & DRÍFA LÍFTÓRA, “Það sem leynist bak við skugga 4 víddar”
Samsýning í Listasafni Einars Jónssonar
Halldóra Sif Guðlaugsdóttir & Brynja Skjaldar sýndu rómantíska fallega línu undir merki SIF BENEDIKTA. Þær drógu okkur aftur til fortíðar með fallegum flíkum, silkislæðum, bylgjum í hári og formfallegum fylgihlutum.
Drífa Líftóra:“Það sem leynist bak við skugga 4 víddar”
Fatalínan er sprottin upp úr pælingum höfundar um myrkfælni sem völundarhús hugans og bjögunina sem á sér stað í skuggaspili.
Efnin eru öll handþrykkt af Drífu & ganga mynstrin hvert upp í annað sem gefur af sér mjög lifandi fatalínu.
BAHNS kynnti þriðju sundfatalínuna sína með einstakri sundupplifun í Vesturbæjarlaug.
Dansarar sýndu móderniseraðan samhæfðan dans í nýjustu sundfötum merkisins.
Hönnuður merkisins er Helga Lilja
Danshöfundur Inga Maren Rúnarsdóttir.
Við enduðum svo daginn í Stefánsbúð þar sem við (team Trendnet) hittum hönnuðinn Hlín Reykdal.
Hlín Reykdal og skaparinn gerðu saman línu sem sameinar stefnu skartgripa- og fatahönnuðar á óvæntan og skemmtilegan hátt.
Línuna er hægt að skoða í Stefánsbúð.
Þvílík veisla
TAKK fyrir okkur HönnunarMars
Skrifa Innlegg