*Færslan er unnin í samstarfi við mitt eigið merki & verslun: AndreA
Halló haust … Haustið er uppáhalds tími margra en eiginlega ekki minn. Mér þykir bara slatta erfitt að segja bless við sumarið hvað þá sumarið sem aldrei kom :( En það er þó alltaf hægt að líta á björtu hliðarnar sem tengjast að sjálfsögðu fatnaði í mínu tilfelli. Ég elska nefnilega yfirhafnir, kápur & úlpur. Ég elska samt mest að vera sokkalaus í sandölum & kjól en kannski er það bara tilbreytingin sem er svo góð ?
En svona er þetta bara og ekkert við þessu að gera annað en að klæða sig vel og smæla framan í heiminn, hér eru nokkur dress sem ég er búin að vera nota undanfarið !
Ullarhattur – Leðurjakki og bolur: AndreA
Leðurjakkann nota ég allt árið en á haustin & veturna nota ég hann oft sem “inni” flík, þ.e.a.s fer ekki endilega úr honum yfir daginn en fer í kápu eða úlpu yfir hann á meðan ég fer á milli staða.
Andrea: Kápa – Leðurjakki & taska: AndreA – Skór BilliBi // GSskór
Erna: Kápa Notes Du Nord / AndreA – Buxur Oriblu – Skór: Bianco
Við Erna erum að sjálfsögðu báðar í KONUR ERU KONUM BESTAR BOL ♡
Kápa: Gyllti kötturinn // Ég kíki mjög oft þangað eftir bröns eða kaffi í miðbænum(opið á sunnudögum), gaman að gramsa eftir gersemum þar.
Úlpa: 66 Norður // Dyngja í fullkomnum rauðum lit. / *Úlpuna fékk ég að gjöf.
Kápa: Frá uppáhalds danska merkinu mínu NOTES DU NORD fæst í AndreA
Þessi mynd fékk að fljóta með … ég bara eeeelska þetta bak á “Konur eru konum Bestar” bolnum 2018 árgerð !
LoveLove
AndreA
INSTAGRAM: @andreamagnus
INSTAGRAM: @andreabyandrea
Skrifa Innlegg