*Fötin sem ég klæðist eru úr versluninni minni AndreA
Ferðast þú alltaf um í síðkjól ? Er spurning sem ég hef fengið þó nokkuð oft senda í sumar þegar ég hef verið á ferðalagi og svarið er JÁ :)
Ekki af því að mig langi að vera í fínustu fötunum mínum heldur af því að mig langar að vera í þægilegustu fötunum mínum. Sérstaklega þegar ég er að fara að sitja lengi í flugvél eða bíl þá reyni ég að forðast þröng föt & gallabuxur.
Að ferðast í síðkjól eða pilsi er eins og að fara út á náttfötunum, ég er alltaf í hjólabuxum undir og strigaskóm við :)
Ég elska þetta trend, áreynslulaust, þægilegt og sjúklega flott.
Kjólar & pils taka líka lítið pláss í töskunni, þeir eru líka það fyrsta sem mig langar að fara í þegar út er komið sérstaklega ef það er heitt. Með þeim pakka ég sandölum og hælum sem passa jafnvel við og strigaskórnir, þannig er ég klár bæði á strönd og til að fara eitthvað fínt <3
Annað sem fer með mér í allar ferðir er FANNY taskan en hún er snilld á ferðalögum undir vegabréf og það allra mikilvægasta.
–
Ég varð að leyfa þessari að fljóta með …. Hún er tekin í París 2012 eða fyrir 7 árum,,,,
Ég er ennþá að nota þetta pils jafn mikið, sennilega miklu meira en þá, góð kaup það :)
LoveLove
AndreA
Instagram @andreamagnus
Skrifa Innlegg