Mér finnst alveg ómissandi að vera með gómsætan bröns yfir Páskana, þá sérstaklega á Páskadagsmorgun og ég held að það eru margir sammála mér. Annars nota ég hvert tækifæri til þess að gera bröns um helgar. Í samstarfi við Krónuna þá útbjó ég girnilegan og einfaldan bröns. Það er svo auðvelt að versla í snjallverslun Krónunnar en þar er búið að setja saman allt sem þarf í gómsætan bröns á frábæru verði. Þið getið skoðað það hér.
Brönsveislan mín inniheldur:
6 hamingjuegg
3- 4 msk rautt pestó
Salt & pipar
Fersk steinselja
10 beikonsneiðar
Amerískar Pönnukökur (tilbúin blanda)
Hlynsíróp
400 g jarðaber
170 g hindber
1-2 blóðappelsínur eða appelsínur
Grísk jógúrt
Granóla
Krónu appelsínusafi
Hrærð egg með rauðu pestó og steinselju
- Hrærið 4-6 egg í skál og steikið þau á pönnu upp úr ólífuolíu. Passið að hræra vel í þeim á meðan þau steikjast.
- Þegar eggin eru tilbúin þá bætið þið saman við 3-4 msk rauðu pestói, salti, pipar og ferskri steinselju eftir smekk.
- Hrærið öllu vel saman. Fallegt að skreyta með smá auka steinselju.
Bakað beikon
- Leggið beikonsneiðar á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-15 mínútur við 200°C á blæstri eða þar til beikonið er orðið stökkt og gott.
Amerískar pönnukökur
- Blandið saman í skál pönnuköku þurrefnablöndunni, mjólk, egg og ólífuolíu eftir leiðbeiningum á pakkningu.
- Hitið pönnu og setjið örlitla ólífuolíu. Steikið ca. 1 dl af pönnukökudeiginu í einu á meðalheitri pönnunni. Snúið pönnukökunum við þegar loftbólur eru komnar í deigið.
- Berið fram með hlynsírópi, jarðaberjum, hindberjum og appelsínusneiðum.
Grísk jógúrt með granóla
- Setjið gríska jógúrt eftir smekk í litlar skálar eða glös.
- Dreifið granóla, jarðaberjum, hindberjum og hlynsírópi yfir eftir smekk.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ VEL! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg