*Dagatalið fékk að gjöf frá Nola
1. Desember. Loksins fyrsti í aðventu og það má opna glugga eitt á dagatalinu.
VÁ ! Ég hef aldrei séð jafn mikið af fallegum, vel hönnuðum og flottum dagatölum eins og í ár. Mig hefur ekki langað í dagatal sjálfri síðan ég var lítil stelpa en núna er ég búin að fá mér tvö og hálft :) Með hálft á ég við Ísabellu dagatal, en hún fékk sér Essie dagatalið annað árið í röð sem við notum svo saman :)
Í raun er hægt að kíkja í pakkann, eða sjá innihaldið áður en maður velur dagatal en flest dagatölin eiga það sameiginlegt að vera vegleg og maður fær mikið peninginn.
NOLA
Hversu fallegt er dagatalið frá Nola ? Íslenskar eldklárar konur gerðu þetta dagatal frá A-Z.
Í Nola bleikum lit með gylltri teikningu eftir Rakel Tomas listakonu framan á, svo ótrúlega fallegt.
Karin snillingur, eigandi Nola gerði dagatalið ásamt Bryndísi samstarfskonu sinni . Þær stöllur völdu vandlega vörur inn í dagatalið fyrir hvern dag. Á föstudegi má búast við augnhárum fyrir jólahlaðborðið og dekur leynist á réttum stöðum /dögum. Þessar stelpur vita svo sannarlega hvað þær eru að gera og ég treysti því að það verður skemmtilegra að vakna á morgnanna fram að jólum.
Mér finnst þetta dagatal svo ótrúlega fallegt hjá Nola en ferlið hjá þeim byrjaði í apríl ,,, þegar enginn annar var farinn að hugsa um jólin 2019 eða hvað ?
Hvað leynist í dagatalinu ? Það verður spennandi að vakna á hverjum morgni við lítinn glaðning.
Nú er maður bara eins og litlu börnin getur ekki beðið eftir því að opna :)
Ég ætla að hemja mig og opna hvern dag fyrir sig með morgunbollanum … lofa <3
Gleðilega aðventu
Andrea
Instagram @andreamagnus
Skrifa Innlegg