Tískuvikan í Kaupmannahöfn er ótrúlega skemmtileg vika sem haldin er tvisvar sinnum á ári í janúar og ágúst. Borgin iðar af lífi og það er allt morandi af skvísum og stælgæjum sem koma allstaðar að til að vera þarna, vinna á þessum tíma. Innkaupafólk, hönnuðir, sölumenn og áhrifavaldar. Samansafn af fólki úr tískubransanum.
Ég er búin að vera þarna tvisvar á ári meira og minna í mörg ár (ég er hætt að telja). Tískuvikan var þó öðruvísi hjá mér í ár en vanalega þar sem ég eiginlega millilenti í Köben á leiðinni til Austurríkis. Ég hafði því lítinn tíma og pakkaða daga á fundum og hlaupum. Ég tók dóttur mína með sem er 12 ára “assistant buyer” :) Það var gaman að sýna henni hvað við erum að gera í vinnunni og leyfa henni að vera með. Ég hef tekið hana einu sinni með áður en þá var hún 6 mánaða. Frá 2-11 ára var hún í pössun, Takk mamma!
Götutískan er sérstaklega skemmtileg á þessum tíma og gefur manni mikinn innblástur.
Ég tók hér saman myndir sem heilla mig og spyr: Hvað spottar þú marga Íslendinga á þessum myndum?
Myndir: skjáskot #Cphfw
LoveLove
AndreA
Instagram: @andreamagnus
Instagram: @andreabyandrea
Skrifa Innlegg