AndreA Magnúsdóttir og Elísabet Gunnars geta glaðst eftir virkilega vel heppnaðan viðburð með Konur Eru Konum bestar góðgerða verkefnið sitt í þriðja sinn. Viðburðurinn byrjaði klukkan 17 á fimmtudag en klukkan var rétt rúmlega 16 þegar byrjaði að myndast röð fyrir utan og þannig var það nánast til lokunar í Hafnafirði. Ásamt Trendnet systrum okkar er það Aldís Pálsdóttir, Rakel Tómasdóttir og Nanna Kristín Tryggvadóttir sem standa á bakvið verkefnið sem snertir marga. Elísabet Gunnars sagði ykkur frá því HÉR.
Aldís Pálsdóttir mundaði linsuna og hér að neðan megið þið sjá falleg hjörtu sem tóku þátt í verkefinu á einn eða annan hátt. Kraftur mun greinilega njóta góðs af ágóða bolasölunnar í ár en stelpurnar völdu það félag til að styrkja að þessu sinni.
Leyfum myndunum að tala sínu máli. Hér var stuð –
Þegar Aldís nær rétta augnablikinu –
Röðin: Takk til allra fyrir þolinmæðina og jákvæða andrúmsloftið –
Ástrós Rut, Elísabet Gunnars og Emma –
Bergný Margrét og Elísabet –
Nanna Kristín besti gjaldkeri var brosmild efti daginn, með fulltí í fangi –
Takk fyrir komuna, Kraftakonur –
Skál, í boði Ölgerðarinnar –
Mæðgur
Konur Eru Konum Bestar – verum fyrirmyndir fyrir komandi kynslóð!
Fríða, Hanna Borg og Svala –
Takk Svana á Svart á Hvítu, fyrir alla þína hjálp –
Gleðin var við völd –
Þessar stöllur keyrðu frá Selfossi, bara til að leggja málefninu lið, TAKK.
Máni og Brynja Dan –
Sara Regins og vinkona okkar allra, Erla –
Nýkringdur Dómsmálaráðherra, Áslaug Arna, lét sig ekki vanta –
Paldís, Magnea, Vera og Sylva Sól –
Erik Fjólar er kraftaverkardrengur og einn af heiðursgestum –
Magnea og Ísabella –
Konur Eru Konum Bestar vol 3 þakka fyrir sig –
HÉR geta áhugasamir keypt bol á meðan birgðir endast.
//
TRENDNET
Skrifa Innlegg