fbpx

TRENDNÝTT

SUMARPARTÝ HILDAR YEOMAN – TÍSKA, TÓNLIST & TAKTAR

FÓLK

Sumarlínan frá Hildi Yeoman er komin. Að þessu sinni er hönnunarteymið spennt að senda þig í ferðalag á leynilegar strendur og í vilt sumarpartý í miðnætursólinni. Innblástur í línuna sem ber nafnið Breeze er sótt til hafsins og þess krafts sem þar býr. Prent halda áfram að vera stór þáttur í hönnun Hildar og bera þau nöfn eins og Shipwreck og Neon Pearl og skapa því óvænta en spennandi tengingu milli hafsins og skærra lita sumarsins.

LÍNAN Í HEILD SINNI HÉR

Trendnet tók þátt í stuðinu sem Hildur skapaði á Laugarveginum fyrir helgi. Þar var öllu til tjaldað og fólk hoppaði í rigningunni með sól í hjarta – í anda innblásturs línunnar. Ekki var annað hægt í jafn fallegu umhverfi og stemningu sem Yeoman Store stóð fyrir að þessu sinni á Hönnunarmars. Dj Dóra júlía, Unnsteinn Manuel og Gugusar spiluðu sáu um tónlistina sem ómaði um alla miðborg.
Myndirnar að neðan tók Hlín Arngríms –


Starfsstúlkur Yeoman klæddust allar nýjustu línunni

Við erum sjúk í þetta sett sem dansarinn Karitas Lotta klæðist

Andlit sumarlínunnar er fyrirsætan Kristín Lilja

Með sól í hjarta, og með regnhlíf

Með taktana á hreinu

Ofurþjálfarinn Gerða ásamt dóttur sinni

Elísabet Gunnars í Neon Pearl dress 

Rósa, Óttar og Steinþóra


Sætu Yeoman skvísur

Listakonan Saga Sig og stílistinn Anna Clausen, báðar í Breeze 

Gordons gin sumarkokteilar eru betri með blómum í glasi 

Íslensk hönnun, dancing in the rain

Förðunarsnillingarnir sem létu dansara og aðra lýta vel út

Við erum sjúk í settið sem Gugusar klæðist, fæst: HÉR

Pattra og Thea létu sig ekki vanta

Hönnuðir styðja aðra hönnuði á Hönnunarmars 

Sindri Snær, Alexia Mist og Óli Alexander 

Fyrirsætan Kristín Lilja og Ágúst Örn


Tískufólk lét sig ekki vanta

Unnsteinn fékk fólk til að hoppa 

Álfrún Páls frá Hönnunarmiðstöð og okkar eigin Elísabet Gunnars

Anna Clausen, Sunna Björk og Mosha Lundström

 

Gugusar og Unnsteinn klædd í Yeoman

Takk fyrir okkur Yeoman Store, og til hamingju með nýju línuna. Sjón er sögu ríkari á Laugavegi 7.

//TRENDNET

Gina Tricot kynnir sjálfbært samstarf við sænska undirfatamerkið Allvar 

Skrifa Innlegg