fbpx

TRENDNÝTT

Gina Tricot kynnir sjálfbært samstarf við sænska undirfatamerkið Allvar 

KYNNINGSJÁLFBÆR TÍSKA

Tískukeðjan Gina Tricot, sem nýlega opnaði netverslun á Íslandi, frumsýnir nú nýjasta hönnunarsamstarf sitt þar sem áhersla er á sjálfbærni og undirfatnað. Í samvinnu við sænska undirfatamerkið Allvar Underwear kynnir Gina Tricot undirfatalínu í afar takmörkuðu magni en efnin í línunni eru framleidd úr sænskum trjám. 

Frá sænskum skógum í mjúk og slétt undirföt, þessi einstöku undirföt eru framleidd úr efnum sem finnast í skóglendi Ångermanlands en þar eru skógarnir FSC og PEFC vottaðir sem ábyrg skógrækt. Textíllinn er framleiddur í Evrópu og flíkurnar saumaðar af frumkvöðlafyrirtæki sem stofnað var af nokkrum konum og er staðsett í vöggu sænsks textíliðnaðar í bænum Borås í Svíþjóð. Öll virðiskeðja línunnar, allt frá efnivið skógarins að fullunninni vöru kemur frá sama bænum til þess að lágmarka flutningskostnað og styðja við kvenfrumkvöðla á staðnum. Þetta köllum við sjálfbært samstarf. 

,,Það er svo frábært að við skyldum geta útbúið textíl sem er nánast eingöngu úr sænskum skógi sem hefur vaxið hér í 100 ár. Efnið er framleitt á sjálfbæran hátt innan Evrópu og með því að sauma flíkurnar í Svíþjóð náum við að gera þetta á einnig sanngjörnu verði,”  segir Niklas Gilmark, viðskiptastjóri hjá Allvar Underwear.

Línan sem kemur í takmörkuðu upplagi samanstendur af 14 flíkum í 2 fallegum litum og er nú fáanleg á www.ginatricot.is 

birch samfella, fæst: HÉR

 

… og í brúnu: HÉR

Hjólabuxur: HÉR

Hlýralaus bolur: HÉR

 

Línan í heild sinni finnið þið HÉR

//TRENDNÝTT

HVERJIR VORU HVAR? LORÉAL & H VERSLUN BUÐU Á EINSTAKAN VIÐBURÐ

Skrifa Innlegg