fbpx

TRENDNÝTT

BLEIKA LÍNAN Í LINDEX

FÓLKKYNNING

Lindex kynnir bleiku línuna til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini

Líkt og undanfarin ár styður Lindex við starf bleiku slaufunnar og baráttuna gegn brjóstakrabbameini. Átak þar sem starfsfólk og viðskiptavinir Lindex sameinast í að safna fé fyrir þetta mikilvæga málefni. Nú í ár hefur Lindex hannað kósýfatalínu þar sem bæði mamman og börnin geta verið í stíl en 10% af sölu línunnar í október rennur til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini. 

“Við höfum stutt við málefnið í næstum 10 ár eða síðan við opnuðum á Íslandi því þessi barátta skiptir okkur og viðskiptavini okkar miklu máli, við höfum átt frábært samstarf við Krabbameinsfélagið og fögnum því að geta lagt þeirra frábæra starfi lið” segir Lóa Dagbjört umboðsaðili Lindex á Íslandi. 

Bleika línan 2021 samastendur af kósýfötum í hvítum, brúnum og  dimmbleikum litum úr velúr, mjúku pile efni og kósý bouclé efni. Í línunni eru bæði dömu-og barnaföt svo bæði móðir og barn geta átt hlýjar kósýstundir saman í vetur. 

Í bleika mánuðinum leggur fyrirtækið mikla áherslu á að auka meðvitund um mikilvægi þess að konur skoði brjóst sín reglulega og hvetur þær til að skoða  leiðbeiningar sem sýna skref fyrir skref hvernig best er að framkvæma sjálfsskoðun. 

Línan kemur í sölu í völdum verslunum Lindex og í vefverslun lindex.is á bleika deginum 15.okt en þann dag mun 10% af allri sölu fyrirtækisins renna til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini á Íslandi. 

Kósý tími?

Í stíl ..

Fyrir hana ..

Trendnet hvetur lesendur til að kynna sér bleik góðgerðamál víða þessa dagana, saman erum við sterkari.

LESIÐ LÍKA: BLEIKA SLAUFAN EFTIR HLÍN REYKDAL

//TRENDNET

SÝNISHORNASALA AS WE GROW: MEÐ SJÁLFBÆRNI AÐ LEIÐARLJÓSI

Skrifa Innlegg