Ég hef haft augastað á þremur fallegum flíkum núna undanfarið frá Zöru þar sem ég renn reglulega í gegnum netsíðuna þeirra. Það gladdi mig því mjög mikið þegar ég fann eina flíkina í Zöru búð í Portugal þegar ég var þar í seinustu viku. Ég hljóp inn í búðina og náði c.a hálftíma en það var frekar erfitt þar sem ég vildi að ég hefði meiri tíma, því mig langaði að máta svo mikið meira.
Ég náði að kaupa þessar fallegu svörtu flare buxur, en mig hefur lengi langað í svona útvíðar buxur en aldrei fundið neinar sem passa almennilega á mig. Þessar pössuðu þó fullkomnlega á mig- nema það þarf að stytta þær smá þar sem ég er bara 160 á hæð og lendi regluleg í því veseni að buxur séu of síðar á mig. Líklegast nokkrar sem kannast við það.
Ég stefni á að kaupa leðurkjólinn á næstunni þar sem ég hef séð hann nokkrum sinnum í Zöru hér á Íslandi en hef ekki rekist á rúskinnsjakkann ennþá. Þetta er allt fullkomið í sumar.
Þið getið skoðað Zöru síðuna HÉR.
xx
// Karin
Skrifa Innlegg