Sólgleraugu: Union frá Han Kjøbenhavn @ Húrra Reykjavík
Skór: Stan Smith – Adidas @ Húrra Reykjavík
Nældi mér í sólgleraugun hér að ofan áður en ég fór til Kanarí í apríl – held að ég haldi mest uppá þessi sólgleraugu af öllum þeim sem ég hef átt. Þau eru unisex og frá danska merkinu Han Kjøbenhavn. Svo kíktum við Þórdís í Húrra í síðustu viku og fengum okkur sitthvort parið af Stan Smith – þeir komu loksins í stelpustærðum. Ég á rauða Stan Smith fyrir en mig langaði mikið í græna líka. Ég veit líka að Húrra strákarnir eiga von á fleiri skóm í stelpustærðum í sumar – mega næs!
Aldrei nóg af skóm er það nokkuð?
//Irena
Skrifa Innlegg