Fiskur þarf sko alls ekki að vera leiðinlegur og hér kemur bleikja í afar góðum búningi. Ljúffengt taco með BBQ bleikju, mangósalsa, sýrðum rjóma með jalapeno Tabasco, vorlauk og sesamfræjum en þennan rétt útbjó ég í samstarfi við Innnes. Þessi samsetning er ofur góð og öll hráefnin vinna vel saman. Ferskt, gott og fljótlegt og ég mæli með að þið prófið.
Fyrir tvo
500 g bleikja
2-3 msk Heinz BBQ sósa
Salt & pipar
Mission street tacos
1,5 dl sýrður rjómi
1-2 tsk jalapeno Tabasco
Romaine salat eða annað salat
1 vorlaukur
Sesamfræ
Mangósalsa
1 tómatur
½ mangó
1 avókadó
Safi úr ½ lime
Aðferð:
- Leggið bleikjuna á bökunarplötu þakta bökunarpappír. Saltið og piprið bleikjuna og smyrjið hana með BBQ sósunni.
- Bakið í ofni við 190°C í 12-15 mínútur.
- Smátt skerið tómat, mangó og avókadó. Blandið saman í skál ásamt safa úr lime.
- Hrærið saman sýrðum rjóma og jalapeno Tabasco sósu.
- Skerið vorlauk smátt og skerið romaine salatið í strimla.
- Steikið tortillurnar uppúr ólífuolíu og smyrjið þær með sýrða rjómanum. Dreifið salatinu, salsanu og fiskinum yfir. Toppið með vorlauk og sesamfræjum. Njótið vel :)
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg